$BlogRSDURL$>
|
| Hljóðbútur líðandi stundar, ýtið á play: Brandon Lee í Showdown in Little Tokyo: Dolph-aðdáandi líðandi stundar: Árni Geir! Árni Geir er einn af þúsundum aðdáenda Dolphs á Íslandi. Við völdum hann því hann gengur með sumum af stjórnarmeðlimunum í skóla. Árni hreifst af Dolph Lundgren þegar hann sá Dolph berjast við Yakuza gengið illræmda í Showdown in Little Tokyo. Upp frá því byrjaði Árni að ganga í þröngum buxum til heiðurs meistaranum því eins og margir vita þá gekk Dolph í gegnum það skeið einmitt í kringum tvítugsaldurinn. Tilvitnun líðandi stundar: Ivan Drago: ,,I must break you!" Dolph-kvikmynd líðandi stundar: .:The Defender:. The Defender er næst nýjasta mynd Dolph Lundgren og jafnframt fyrsta leikstjórnarverk meistara Dolphs. Myndin gerist á sveitasetri einu í Rúmeníu. Þar er varnarmálaráðherra Bandaríkjanna og illræmdur hryðjuverkamaður á leynilegum fundi. Dolph leikur lífvörð varnarmálaráðherrans og enginn annar en Jerry Springer leikur forseta Bandaríkjanna. Myndin kemur oft á óvart og má segja að endirinn sé einn sá óvæntasti síðan að Seven kom út. Dolph.tk-hlekkir: *Heimasíða meistarans *Glæsileg fansíða *Aðdáendaklúbbur Van Dammes Tölvupóstföng stjórnarmeðlima: -Anton Heiðar: a_thorolfsson@hotmail.com -Einar Óli: dolphlundgrenfan@hotmail.com -Einar Geirsson: einarge@kvenno.is -Oddur Þorri: oddurthorri@hotmail.com -Magnús Friðriksson: magnus101@hotmail.com -Þórður Steinar: hreidarsson@hotmail.com Svarti listi dolph.tk...: Breska götupressublaðið The Mirror fyrir lygar og lýðskrum um Dolph Lundgren.
Gamalt 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 01/01/2005 - 02/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 06/01/2005 - 07/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 02/01/2008 - 03/01/2008 |
mánudagur, september 26, 2005
Sælir félagar, Í dag birtist grein um okkar ágæta félag í hinum virta blaðsnepli Fréttablaðinu, nánar tiltekið á bls. 34. Þetta fellur undir okkar markmið að kynna hetjuna okkar fyrir landi og þjóð og vonandi er þetta bara byrjunin af því sem koma skal!! Hérna er svo greinin (fengin af visir.is): Kveðja, Einar Óli í geðveikum bol miðvikudagur, september 07, 2005
Bolirnir loksins! Sælir félagar! Loksins höfum við fundið okkur tíma til þess að gera eitthvað í þessum bolamálum. Fyrst var planið að fá þá eftir síðustu vorpróf en það varð lítið úr því! Allavega, núna eru bolirnir að fara í prentun hjá Bolur efh. og bíðum við eftir að sjá hvernig þeir líta út á okkur (það er á von á þeim næsta föstudag). Við ættum að líta vel út með Dolph á maganum :D Annars er lítið að frétta af meistara vorum. Hann er að vinna á fullu í The Mechanicker og vonum við að sú mynd verði eitthvað í líkingu við The Defender sem var mjög góð. Lofa myndum af stjórnarmeðlimum í bolunum þegar þeir koma í hús!! Kveðja, Einar Óli Free Counter |