<$BlogRSDURL$>

þriðjudagur, júlí 13, 2004
 
Mín skoðun á grein "The Mirror"
Segi hvað ég held að hafi gerst.
Kona Dolphs var í einhverstaðar í burtu og Dolph ákvað að fara á krá í þetta skipti þar sem börnin væru ekki heima. Á þessum pöbb byrjar mikið skvöldur þegar kráargestir sjá að svo mikil stjarna eins og Dolph Lundgren er mætt. Síðan fer þessi ágæta stelpa að reyna við meistara Dolph (hver mundi ekki reyna við stórstjörnu ef það stæði til boða?). Hún spyr Dolph hvort hann geti ekki sínt honum vöðvana sína en Dolph vill helst ekki gera það þar sem hann sér að þessi stúlka er mjög full. Eftir mikið áreiti frá stúlkunni í garð Dolphs þá ákveður hann að gefa eftir í sína styrkleika sinn. Hann lyftir henni upp með því að halda um úlnliðinn. Síðan sleppir hann henni og slær létt á höfuðuð á henni en þar sem hann er svo sterkur og hún hefur verið blindfull þá hefur hún dottið niður og meitt sig. Síðan spyr Dolph hvort allt sé ekki í lagi, segir hún þá nei og glottir þá Dolph því hann vissi að hann hafði sínt henni styrkleika sinn en hann ætlaði alls ekki að meiða hana. Daginn eftir vaknar stúlkan í litlu íbúðinni sinni með smá marblett eftir þetta litla fall. Fer á netið og les um samband Rebekko Loos og David Beckham og þá dettur henni í hug hvernig hún getur eignast pening. Hún hringir í The Mirror og segist hafa góðu sögu og þeir bjóða henni nokkur þúsund pund. Hún náttla man ekki eftir öllu þar sem hún var haugafull.
Síðan lesum við almúginn um þetta og verðum öll hneiksluð.
Ég er svona 99% viss að þetta gerðist svona því ég hef reynslu af "tabloidunum" í englandi og veit hve mikil lygi er í þessum blöðum.

Einar Óli

|

Free Hit Counters
Free Counter